Ég er Þurý Gísla
Ég þekki leiðina heim
Ég veit hvernig það er að týna sjálfri sér í mikilli ábyrgð, stöðugri keyrslu og kröfunni um að vera alltaf dugleg. Eftir að ég fór í kulnun hófst djúp sjálfsvinna sem varð vendipunktur í lífi mínu. Hún leiddi mig aftur heim til sjálfrar mín – og að því starfi sem ég sinni af ástríðu í dag.
Í Líf Ómi styð ég fólk á sinni heilsuvegferð með hlýju, virðingu og djúpum skilningi á því að einkenni eru oft leið líkamans til að kalla eftir athygli.


Velkomin/n í þína heilsuvegferð!
Tíðniþerapía felur í sér tíðnigreiningu og meðferð eða Bioresonance therapy, þar sem orkusvið líkamans er skannað og tíðniójafnvægi fundið, í framhaldi af því eru tíðnir í ójafnvægi leiðréttar.
Það er leitast við að finna grunnorsök á tíðniójafnvæginu og er það í flestum tilfellum utanaðkonandi áreiti s.s. frá rafmagni, farsímabylgjum, eiturefnum, bakteríum, vírusum, myglu og snýkjudýrum.
Saman vinnum við svo að því að hjálpa þér að lágmarka þetta áreiti, með tíðnileiðréttingu og með því að finna út hvar í umhverfinu þínu áreitið er helst og hvernig er hægt að lágmarka það.

Hafa samband
Tímabókun
Heimilisfang
Lágmúli 4, 2.hæð
108 Reykjavík
Opnunartími
Mán - Föstud: 9 - 17
.png)




